
|
Benoný Friðriksson var fæddur 7. janúar 1904 að Gröf í Vestmannaeyjum. Þar ólst hann upp hjá foreldrum sínum. Við húsnafnið Gröf var hann kenndur til æviloka og nefndur Binni í Gröf. Leikvangur Binna voru bryggjurnar, og byrjaði hann ungur að draga fisk úr sjó. Fimmtán ára byrjaði Binni sína fyrstu formennsku að sumri til með árabát sexæring, voru þeir fjórir á bátnum. Hásetarnir voru jafnaldrar Binna. Sóttu þeir sjó af miklu kappi og fiskuðu mikið. Árið 1920 byrjaði Binni á mótorbát var það Nansen VE 102. En næstu vertíð var Binni orðinn mótoristi á Nansen. Árið 1925 gerðist Benoný útgerðarmaður með því að kaupa Gúllu VE 267 að 1/4. Næstu vertíð 1926 tekur svo Binni við formennsku á bátnum og þar með hefst hans frægðarferill sem skipsstjóri. Nokkur sumur var Binni með árabát frá Skálum á Langanesi og var oft aflahæstur. Frá 1926 til vertíðarloka 1953 var Binni með eftir talin skip. Gúllu.Gottu. Heklu. Gulltopp. Sævar. Þór. Andvara. Vertíðina 1954 varð hann skipsstjóri á Gullborgu og varð það hans mesta happaskip. Aflakóngur Eyjanna varð hann 7 sinnum á Gullborgu þar af sex sinnum í röð. Þetta er glæsilegur árangur. Benoný var sæmdur hinni Íslensku fálkaorðu. Beoný Friðriksson var giftur Katrínu Sigurðardóttur og áttu þau átta börn.Binni í Gröf lést 12 maí 1972. |