Árið
1964 var Bergur VE 44 með mesta aflaverðmæti Vestmannaeyjabáta.
Skipsstjóri var hinn kunni aflamaður Kristinn Pálsson
frá Þingholti hér í bæ.
Kristinn er fæddur í Vestmannaeyjum 20.ágúst
1926 sonur hjónanna Þorsteinu Jóhannsdóttur
frá Brekku og Páls Jónassonar
sem var þekktur aflamaður á sinni tíð.Þau
hjónin bjuggu alla sína tíð í Þingholti
og áttu fjölda barna. Af þeim systkinum komust 13 til
fullorðinsára,og eru fjórir af bræðunum þekktir
skipsstjórar Emil Kristinn Jón og Sævald og 2 tengdasynir
þeir Grétar sem var með Ver og Guðmundur Ingi á
Huganum sem oft hefur unnið Ingólfsstöngina.Kristinn tók
fiskimannapróf og byrjaði sem formaður á Nyrði
EA.Um vorið 1955 gerðist Kristinn meðeigandi í útgerð
með Magnúsi Bergssyni sem skýrður var Bergur VE 44.Þessi
bátur var 77 tonn að stærð Svíþjóðarbátur.Sá
bátur sökk 6 desember 1962.Í desember 1963 kom nýr
Bergur,216 tonna stálbátur byggður í Noregi.Bergur
VE ber nafn þekkts aflamanns frá Hafnarfirði.Kristinn
Pálsson rótfiskaði á þennan bát
og vann Ingólfsstöngina árið 1964.Árið
1973 kaupir Kristinn togara frá Japan sem skírður var
Vestmannaey og hefur fiskast vel á það skip.Kristinn Pálsson
var einnig stór hluthafi í Ísfélagi Vestmannaeyja.Kristinn
lést 4. oktober árið 2000.
Til baka
|