|
|
![]() |
|||
| Daniel Willard Fiske Traustason var fæddur í Grímsey 18 júní 1928.Hann var skírður eftir velgjörðarmanni þeirra Eyjaskeggja, prófessor í norænum fræðum. Hann var svo hrifinn af skákkunnáttu þeirra að hann gaf Eyjabúum töfl og skákfræðirit. Daniel byrjaði snemma til sjós á trillum frá Grímsey, en kom til Vestmannaeyja 1955. Árið 1956 byrjaði hann sem skipsstjóri með Ísleif gamla, síðan Fjalar. Árið 1960 sótti hann nýjan bát Hringver til Svíþjóðar fyrir Helga Benediktson. Næst réðist hann til Einars ríka, og sótti Engey til Noregs og fiskaði vel á það skip. Þá var hríngnótar ævintýrið og menn búnir að tileinka sér astikið. 1965 byrrjaði Villi Ficher í útgerð á Kóp VE11 sem hann keypti af Einari ríka. Villi Ficher eins og hann var kallaður í Eyjum varð aflakóngur 1 sinni. Daniel W. F. Traustason var giftur Hildi Jónsdóttur frá Sólvangi og eignuðust þau 3 börn. Daniel lést árið 1981 þann 27 september. | ||||