
Eyjólfur
Pétursson skipsstjóri á Vestmannaey vann Ingólfsstöngina
árið 1974.Eyjólfur fæddist í Laugardal í
Vestmannaeyjum árið 1946,sonur hjónanna Sigríðar
Eyjólfsdóttur og Péturs Þorbjörnssonar
skipsstjóra.Eyjólfur var skírður eftir móðurafa
sínum í Laugardal Eyjólfi Sigurðssyni,sem var
kunnur sjómaður og formaður hér í bæ.Standa
miklir fiskimenn að Eyjólfi í báðar ættir.Má
þar nefna Óskar Eyjólfsson sem var aflakóngur
Vestmannaeyja í margar vertíðar,en Óskar fórst
við Eyjar árið 1953.Eyjólfur byrjaði sem hálfdrættingur
á togurum frá Reykjavík með föður sínum,sem
var skipsstjóri hjá Bæjarútgerðinni.Eyjólfur
var háseti og stýrimaður þar til hann tók
við Hallveigu Fróðadóttur árið 1969 og
var með hana í þrjú ár.Árið 1972
um haustið er hann ráðinn með Vestmannaey,og fer til
Japans að ná í skipið.Á fyrstu 15 mánaða
úthaldstíma fiskaði Vestmannaey 4,200 tonn af fiski.Eyjólfur
Pétursson er giftur Ingveldi Gísladóttur og eiga þau
tvö börn.
|