Ísleifur IV VE 463

Árið 1970 vann Ísleifur IV Ingólfsstöngina.Skipsstjóri var hinn kunni aflamaður Jón Valgarð Guðjónsson eða Gæsi eins og hann er nefndur hér í bæ.Gæsi byrjaði ungur til sjós með ekki ómerkari manni en Binna í Gröf á Hilmi 1.júlí 1946.Gæsi byrjaði á síld á tvílembingi  þeim Hilmi og Gullborgu.Gæsi var með Binna næstu árin á Andvara og Sævari, síðan á Sjöfn með Þorsteini heitnum Gíslasyni.Gæsi lauk skipsstjórnarprófi 1954.Hann hóf formennsku árið 1955 með Blátind og tók síðan Sæbjörgu,sem Ingólfur Theódórsson gerði út. Um 1960 keypti hann Hafþór Guðjónsson 70 tonna blöðrubát, gerði hann bátinn út og var með hann í tvö ár,en þetta voru erfið ár hjá útgerðinni og hætti hann útgerð.Fór hann þá til Villa Fischer á Hringver og síðan til Páls Ingibergssonar á Reyni.Gæsi tók við Reyni á sumarsíldveiðum árið 1964 rótfiskuðu og voru um tíma hæsti bátur á þeim veiðum.Skömmu síðar tók hann við Engey og var með hana þar til hann tók við Ísleifi IV vorið 1967 af Gunnari Jónsyni.
Ísleifur með gott kast á síðunni

Til baka