
Gísli
Jónasson
Árið 1965 var Ísleifur IV með mesta aflaverðmæti Vestmannaeyjabáta Þennan afla komu 3 skipsstjórar með að landi ásamt hinum vösku sveinum áhafnar.Skipsstjórar voru þeir Guðmar Tómasson sem var með bátinn á vertíðinni en varð að láta af störfum um vorið vegna veikinda,þá tók Gunnar Jónsson við og var með bátinn til júníloka.Frá júnílokum til áramóta var Gísli Jónasson með bátinn og fiskaði vel eða fyrir rúmar 10 milljónir.Gísli Jónasson er landeyingur að ætt fæddur í Reykjavík 13 september 1933.Hann missti föður sinn ungur og ólst upp hjá Guðmundi Guðlaugssyni í Hallgeirsey og konu hans Guðríði Jónasdóttur.Hugur Gísla hneigðist að sjónum og árið 1952 fór hann til sjós á togara.Árið 1954 fór Gísli til Eyja á vertíð með Óla í Skuld á Ófeig II.Síðan fer Gísli í siglingar og kannar þá hlið sjómennskunnar. Formennsku byrjaði Gísli 1963 á Halkion,en vertíðina 1964 var hann stýrimaður með Óla í Skuld þegar Ófeigsmenn voru hæstir á vetrarvertíð.Gísli var með 3 báta 1965 og fiskaði fyrir tæpar 15 milljónir þetta er glæsilegur afli á einu ári.Gísli er giftur Viktoríu Karlsdóttur og eiga þau 6 börn.
Til baka |