
Fyrstur
til að vinna Ingólfsstöngina var Gjafar ve 300 skipsstjóri
var hinn kunni aflamaður Rafn Kristjánsson
Rafn kristjánsson var fæddur í Flatey á Skjálfanda 19 mai árið 1924.Ólst hann þar upp við þröng kjör kreppuáranna í stórum systkinahóp.Faðir hans drukknaði þegar Rafn var 14 ára.Byrjaði Rafn þá að stunda sjó frá Flatey ásamt bróður sínum,og keyptu þeir trillu sem sem var upphafið að þeirra útgerð.Veturinn 1943 kom Rafn til Eyja á vertíð og hefur hann dvalist hér síðan.Rafn hélt ávallt tryggð við Eyjuna sína í norðri og þegar þeir voru á síld var komið oft þar við enda fylgdust Flateyingar vel með sínum manni.Vertíðina 1945 réðst Rafn á Vonina til Guðmundar frá Holti og var með honum í 7 ár.Guðmundur var vel kunnugur á Eyjamiðum
Árið 1950 lauk Rafn fiskimannaprófi frá Stýrimannaskóla í Reykjavík.Sína formennsku byrjaði Rafn með Lagarfoss en árið 1956 kaupir hann ásamt bróður sínum og mági 51 tonna stálbát sem hlaut nafnið Gjafar.Farnaðist þeim vel í starfi og rótfiskuðu.Árið 1960 keyptu þeir félagar nýjan bát 122 tonn að stærð.Árið 1964 fóru þeir út í nýsmíði í Hollandi.Rafn fiskaði vel á bátana sína enda vann hann Ingólfsstöngina 4 sinnum.Árið 1966 kom Gjafar með mestan afla sem hefur fengist í róðri eða 160 tonn.Rafn var kvæntur Pálínu Sigurðardóttir frá Hruna hér í bæ og eignuðust þau 6 börn.Rafn Kristjánsson andaðist 4.desember 1972 Rafn kristjánsson
að taka við Ingólfsstönginni.Gjafar á leið
til hafnar
|
|---|