Gllberg VE 292
Árin 1975 til 1982 var Guðjón Pálsson á Gullberginu aflaverðmætiskóngur og fékk Ingólfsstöngina.Guðjón kom til Vestmannaeyja árið 1958 á vetrarvertíð og var stýrimaður á Sigurfara með Óskari á Garðsstöðum.Hann hóf formennsku árið 1960 og var þá með Hafbjörgu fyrir Ingólf Theódórsson og var með hana í eina vertíð.Næstu tvær vertiðar var hann stýrimaður á Baldri og Ófeigi III.Árið 1963 tók Guðjón við skipsstjórn á Stefáni Þór og hefur verið í hólnum síðan.Árið1964 tók Guðjón við Gullver sem Ólafur M Ólafsson og Jón Pálsson áttu.Árið 1965 tók Guðjón við Gullbergi og fiskaði vel á það skip.Árið 1970 keypti Guðjón ásamt tengdaföður sínum Jóni Guðleifi Ólafssyni og Ólafi Sigmundssyni vélstjóra Gullbergið af Ólafi Ólafssyni frá Seyðisfirði.Þeir Ólafur Sigmundsson og Guðjón hafa verið saman til sjós síðustu 12 árin. Árið 1975 kom nýtt Gullberg sem reyndist hið mesta happaskip.Guðjón Pálsson var giftur Elínborgu Jónsdóttur og áttu þau tvö börn.Guðjón andaðist árið 1987 þann 20. nóvember.

Gullberg á leið til hafnar með fullfermi.Áhöfnin sem lengi var með Guðjóni.

 

Til baka