Guğmundur Ingi

Guðmundur Ingi Guðmundsson er fæddur í Hafnarfirði 22 október 1932 sonur hjónanna Guðmundar Tómassonar sem var sjómaður og konu hans Steinunnar Sæmundsdóttur þau áttu heima í Reykjavík og þar ólst Guðmundur upp. Guðmundur fór kornungur á togara frá Reykjavík og var með Halldóri Ingimarssyni á Gylli,síðan á Karlsefni og einnig togurum frá Ísafirði. Hann kom til Vestmannaeyja  á vertíð 1955 og réri á Jötni með Oddi  í Dal. Þeir voru þá saman Hörður Jónsson óg Guðmundur Ingi sem báðir urðu aflakóngar síðar. Formennsku sína byrjaði Guðmundur Ingi á Jötni árið 1957, síðan á Hafbjörgu og Erlíngi 1V. Haustið 1959 fór Guðmundur í útgerð með Óskari heitnum Sigurðssyni og keyptu Hugann ve 65 sem var 60 tonna bátur. Veiðar gengu vel á þann bát. Þeir létu smíða nýjan bát í Noregi Hugann II VE 55sem var afhentur 5 marz 1964. Huginn II reyndist hið mesta aflaskip. Guðmundur Ingi varð aflakóngur árið 1972. Guðmundur Ingi er giftur Krístínu Pálsdóttur frá Þingholti sem er systir þeirra Kristins og Sævalds kunnra aflamanna hér í bæ, og eiga þau  4 börn.

 
 

Til baka