
Gunnar Jónsson
er fæddur í VVestmannaeyjum 18 janúar 1940 sonur hjónanna
Rósu Guðmundsdóttur frá Málmey og Jóns
heitins Guðmundssonar frá Goðalandi sem var mikill aflamaður
á sinni tíð. Gunnar byrjaði til sjós 1958
með föður sínum á Ver og lauk prófi
frá stýrimannaskólanum í Reykjavík árið
1961. Gunnar hóf formennsku á Ver á humarveiðum
árið 1963. Á þessum árum var hann á
haustsíldveiðum með Kristni Pálssyni á Berg.
Hann var á gamla Berg þegar báturinn fórst út
af Snæfellsnesi haustið 1962 Gunnar var stýrimaður
á nýjum Bergi 1963. Árið 1965 réðst
hann á Ísleif IV með Guðmari heitnum
Tómassyni og Gísla Jónassyni. Ísleifur IV var
með mesta aflaverðmæti Vestmannaeyjabáta það
ár. Gunnar varð skipsstjóri á Ísleifi IV
1966 og tók við Ísleifi VE 63 árið 1967 og
hefur verið með hann síðan og fiskað vel.Hann er
einn af færustu nótaveiðimönnum í dag.Gunnar
vann Ingólfsstöngina árin 1971 og 1973
Ísleifur
að koma með farm til hafnar.Ísleifsmenn að taka
við Ingólfsstönginni á Sjómannadaginn
|