

| Hilmar Rósmundsson er fæddur á Siglufirði 16 október 1925 sonur hjónanna Rósmundar Guðnasonar og Maríu Jóhannsdóttur . Sjóróðra frá Vestmannaeyjum byrjaði hann vetrarvertíðina 1947 með Páli Ingibergssyni frá Hjálmholti, fyrst á Hilmi, en síðan á Reyni. Síðan varð hann stýrimaður á bátum þekktra aflamanna úr Eyjum eins og Jóhanni Pálssyni á Hannesi Lóðs, og Helga Bergvinssyni á Stíganda. Hilmar gerðist formaður 1958 og tók við skipsstjórn á Gylfa VE og var með hann í 3 ár. Árið 1960 fór Hilmar í útgerð með mági sínum Theódóri Ólafssyni. Keyptu þeir Sigrúnu 50 tonna Svíþjóðarbát, og skírðu hann Sæbjörgu. Byrjana örðugleikar fyrsta árið, og léleg vertíð árið 1961, var ekki gott veganesti. Bátinn misstu þeir haustið 1964, þegar óstöðvandi leki kom að bátnum í róðri. Þrátt fyrir erfiðleika keyptu þeir bátinn Sigurfara frá Akranesi. Var hann skírður Sæbjörg og var það skip aflakóngsins vertíðina 1967. Hilmar varð aflakóngur Eyjanna 3. sinnum. Árið 1969 fiskaði Sæbjörgin 1654 tonn og var það glæsilegt á þennan 50 tonna bát. |