Hörður Jónsson

Hörður Jónsson er fæddur í Reykjavík 7 júní 1937, en ólst upp á Eyrarbakka hjá móðurömmu sinni, Guðrúnu Vigfúsdóttur frá Skúmstöðum. Í föðurætt er Hörður ættaður að vestan. Hörður byrjaði til sjós  á Pipp frá Eyrarbakka, sem keyptur var frá Eyjum. Til Vestmannaeyja kom Hörður á vertíð 1956, og réri á Jötni með Oddi í Dal, og síðan á Sigrúnu. Hörður flutti til Eyja 1959,  réri með Kristni á Berg. 1962 byrjaði hann sem skipstjóri á Gylfa og síðan á Gulltoppi. Árið 1966 fór Hörður í útgerð ásamt Ólafi og Símon og Jóhanni Halldórssyni og keyptu þeir bát sem skírður var Andvari. Bát þennan seldu þeir um haustið. Árið 1968 keyptu þeir félagar Hörður og Jóhann bát af Ísbyrninum, hét sá bátur Hafþór, en var skýrður Andvari.  Hörður varð aflakóngur Eyjanna 2 sinnum á Andvara og Heimaey  . Hörður var í útgerð til ársins 1980, en  réði sig til Hraðfrystistöðvarinnar, og var með eftirtalda báta, Suðurey, Heimaey, Álsey,  Hellisey, Bjarnarey, og síðan  Álsey  1986. Hörður var giftur Sjöfn  heitinni Guðjónsdóttur og áttu þau fjögur börn 

Til baka