
Einar
Ólafsson er fæddur í Vestmannaeyjum á Víðivöllum
þann 23. desember árið 1933.Foreldrar hans voru Guðfinna
Jónsdóttir frá Ólafshúsum og Ólafur
Ingileifsson ættaður úr Mýrdal.Einar ólst
upp í Heiðarbæ frá tveggja ára aldri. Hóf
hann sína sjómennsku á Maggí VE 111 hjá
Guðna Grímssyni árið 1952.Árið 1954 tók
hann vélstjóranámskeið í Vestmannaeyjum.Síðan
var hann með bróður sínum Sigurgeiri Ólafssyni
(Sigga Vídó)sem háseti á Tý og Emmu
og 2. vélstjóri á Vaðgeiri og um tíma á
Erlíngi.Einar fór í útgerð með hálfbróður
sínum Karli Ólafssyni árið 1956 er þeir
kaupa Skúla Fógeta VE 185 og gera þeir hann út
til ársins 1960.Einar tók stýrimannanámskeið
í Vestmannaeyjum árið 1959.Árið 1961 fer hann
sem vélstjóri á Ófeig II VE 324 með þeim
kunna aflamanni Ólafi heitnum Sigurðssyni frá Skuld og
er þar vélstjóri til ársins 1965.Einar byrjar
sem skipsstjóri á sumarsíldveiðum á Ófeigi
II árið 1965 og er með hann til ársins 1971.Þá
fer hann aftur í útgerð með félaga sínum
Ágústi Guðmundssyni vélstjóra.Þeir
stofna útgerðarfélagið Bessa S/F og kaupa Kap VE
4 tæplega 100 tonna austurþýskt stálskip.Árið
1974 kaupa þeir Óskar Magnússon AK sem var skírður
Kap II og gera hana út á loðnu og net þar
til þeir selja Fiskimjölsverksmiðjunni H/F í Vestmannaeyjum
skipið árið 1987 og hætta útgerð.Kap II
var með mesta aflaverðmæti árið 1983.
Kap II VE á leið til hafnar með fullermi.
Áhöfnin á Kap II árið 1982
|