Leó VE 400


Árið 1969 er Leó VE 400 með mesta aflaverðmæti Vestmannaeyjabáta, engum kom á óvart að Óskar Matthiasson skipsstjóri skyldi  fá Ingólfsstöngina.Hann varð aflakóngur vetrarvertíðar 1965,  1966 og 1970.   Annar aflahæsti 1960, 1961 og 1969.Hann hefur  undanfarin ár verið í fremstu röð fiskimanna í Vestmannaeyjum og er löngu þekktur fyrir myndarlega útgerð og sjómennsku .Óskar Matthiasson fæddist í Vestmannaeyjum 22. mars 1921. Foreldrar hans voru hjónin Þórunn Sveinsdóttir og Matthias Gíslason á Byggðarenda. Matthias fórst í róðri á vélbátnum Ara með allri áhöfn árið 1930. Óskar byrjaði til sjós 17 ára gamall. Árið 1944 byrjaði Óskar sem skipsstjóri á Glað, síðan Skuldinni og aftur með Glað. En 1946 keypti hann Nönnu, síðan Leó og Þórunni Sveinsdóttur.Óskar var giftur Þóru Sigurjónsdóttur og eignuðust þau 7 börn. Óskar lést 21 desember 1992.


Leó að koma til hafnar. Áhöfnin sem var til margra ára með Óskari Matt

    

 

 

 

 


 
Til baka