Ólafur Sigurðsson

Ólafur Sigurðsson var fæddur í Skuld í Vestmannaeyjum 14 október 1915, en alla ævi var hann kenndur við fæðíngarstað sinn, og þekktur sem Óli í Skuld. Var hann sonur hjónanna Sigurðar Oddssonar skipsstjóra og Ingunnar Jónasardóttur. Ungur byrjaði Ólafur til sjós, og varð formaður um tvítugt, og síðar fiskilóðs á  Færeyskum skútum.  Í skipsstjóra starfi sínu varð Ólafur sérstaklega farsæll  og miklsmetinn sjómaður.  Má telja Ólaf  meðal bestu sjósóknara í Eyjum.  Skömmu eftir stríðið gerðist hann meðeigandi og skipsstjóri Ófeigs 30 tonna báts. Sú útgerð gekk vel, enda fiskaði Ólafur vel. Árið 1955 keyptu Ófeigsmenn nýjan stálbát frá Hollandi Ófeig 3. VE 325,  og var hann með fyrstu stálbátum sem komu til landsins. Aflaði Ólafur afburðavel á þennan bát. Árið 1959 keypti Ófeigsútgerðin 100 tonna stálbát frá Austur Þýskalandi, Ófeig II Varð Ólafur aflakóngur Vestmannaeyja vetrarvertíðina 1964 og bætti Ólafur öll sín fyrri aflamet á þessari vertíð. Ólafur var kvæntur Ástu Bjartmars og eignuðust þau 3 börn. Ólafur lést 16 mars 1969.

Til baka