

| Óskar Matthiasson fæddist í Vestmannaeyjum 22. mars 1921. Foreldrar hans voru hjónin Þórunn Sveinsdóttir og Matthias Gíslason á Byggðarenda. Matthias fórst í róðri á vélbátnum Ara með allri áhöfn árið 1930. Óskar byrjaði til sjós 17 ára gamall. Árið 1944 byrjaði Óskar sem skipsstjóri á Glað, síðan Skuldinni og aftur með Glað. En 1946 keypti hann Nönnu, síðan Leó og Þórunni Sveinsdóttur. Óskar Matt eins og hann var oftast kallaður varð aflakóngur Eyjanna 3 sinnum. Óskar var giftur Þóru Sigurjónsdóttur og eignuðust þau 7 börn. Óskar lést 21 desember 1992 |