Sighvatur Bjarnason

Sighvatur Bjarnason í Ási var fæddur á Stokkseyri 27 október. Foreldrar hans voru hjónin Arnlaug Sveinsdóttir og Bjarni Jónasson formaður. Á Stokkseyri ólst hann upp til fullorðinsára. Til Vestmannaeyja fluttist Sighvatur árið 1925, þá rúmlega tvítugur. Fljótt varð hann einn af aflasælustu skipsstjórum í Vestmannaeyjum. Hann varð einn af kunnustu síldarskipsstjórum landsins,meðan þær voru og hétu, og oftar en einu sinni aflakóngur á vetrarvertíð. Fyrsta bát sinn eignaðist hann 1926, og fleiri fylgdu á eftir. Sighvatur var gæfumaður í starfi og hlaut hina Íslensku fálkaorðu fyrir björgun skips í sjávarháska. Sighvatur hætti til sjós 1959, og  gerðist framkvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar. Sighvatur varð fyrstur til að vinna aflakóngstitilinn, eftir að fjölskylda Hannesar Lóðs gaf  skipið árið 1953 til áhafnar á Erlingi III Sighvatur var giftur Guðmundu Torfadóttur ættaðri úr Hnífsdal. Þau eignuðust 8 börn. Sighvatur lést árið 1975.

Til baka