Stefán Stefánsson frá Gerði

Stefán Stefánsson frá Gerði er sonur hins kunna aflamanns Stefáns Guðlaugssonar frá Gerði. Má með sanni segja að honum ætli að kippa til kynsins, því að ég held, að á engan sé hallað, þó sagt sé, að Stefán Guðlaugsson í Gerði sé einn sá snjallasti sjósóknari sem Vestmannaeyjar hafi átt. Stefán byrjaði ungur til sjós á sumrum, en  stundaði nám á vetrum. Strax að loknu gagnfræðaprófi, innritaðist hann í Verslunarskólann og hætti þegar einn vetur var eftir, og fór í Stýrimannaskólann. Árið 1957 byrjaði Stefán formennsku á Halkion Nýr Halkion kom til landsins árið1960. Stefán varð aflakóngur 1 sinni árið 1962. Stefán  var lánsamur í starfi og bjargaði skipshöfnum úr sjávarháska. Stefán starfar við  heildverslun í Reykjavík.

Til baka