Um Aflamenn

 


Ég held að fáir eða engir verðlaunahafar séu eins vel að verðlaunum komnir.og þeir miklu aflamenn og vaskar skipshafnir þeirra,  sem eru heiðraðir á hverjum sjómannadegi í Vestmannaeyjum.

Í frjálsum íþróttum þykir maraþonhlaup 42ja km sprettur ein hin erfiðasta íþrótt og þeir frægir mjög,sem þar bera sigur úr býtum. Í mörgu finnst mér góðir aflamenn vera sem góðir maraþonhlauparar, og þó í sumu fremri. Að baki aflamannsins liggur mánaðarstarf, elja og útsjónarsemi, glöggskyggni, kjarkur og kapp, andvökunætur og vomur í hríðar byljum vetrarins.
                                                                           Siglir,særokinn,
sólbitinn slær,
stjörnuskininn stritar.

Með skipsstjóranum vinnur hörðum höndum hin vaska skipshöfn. Að draga sem flest net úr sjó, kasta sem oftast, keppast við það er mátinn til sjós. allir vita hvers virði harðskeyttir sjómenn eru aflaskipinu.
Á góðu skipi eru allir eitt, skip og áhöfn, ein órjúfanleg heild, sem á sér það eitt takmark að fánga sem mest úr greipum hins gjöfula en þó oft duttlungafulla hafs.


 Ţetta er ekki einvörđungu vegna fjáraflavonar,   heldur eru menn knúðir hinum ólýsanlega ákafa gleði veiði og fiskimannsins yfir góðum feng. Og þegar haldið er til hafnar með hlaðinn bát er gleðin og ánægjan yfir góðri veiði sönn, svo að þreyta vökur og erfiði gleymast í svipinn. 

Í landi er æðasláttur byggðarlagsins í nánu sambandi við aflabrögðin. í góðu fiskiríi er allt á flugi og ferð. Já þeir eru að fáann segja menn í óspurðum fréttum og það er létt yfir öllum. Í verslun og viðskipti, í allt bæjarlífið færist nýtt og frjótt líf, þrungið trú á bjartar framtíðarhorfur.

Hvar sem  menn starfa, í iðnaði verslun, bönkum, skólum eða við búskap, fylgjast menn með aflabrögðunum af  lífi og sál. Þeir menn sem eru heiðraðir eru því vel að sínum heiðurstitli komnir.
 

 

Guđjón Ármann Eyjólfsson skólastjóri

Guđjón Ármann Eyjólfsson.skólameis

Til baka á heimasíđu