deutsch íslenska

francais svenska
Hótel Skjaldbreið
Laugavegur 16
101 Reykjavík
Tel: +354 511 6060
Fax:+354 511 6070
skjaldbreid@eyjar.is
 

  NÝTT HÓTEL Í HJARTA MIÐBÆJARINS

 

Hótel Skjaldbreið er nýtt 33 herbergja hótel á þremur hæðum í einu af virðulegustu húsum Laugavegarins.

Fyrir utan er iðandi mannlífið - búðirnar, menningin, kaffihúsin, veitingastaðirnir, skemmtanalífið ásamt ýmsum óvæntum uppákomum sem aðeins Laugavegurinn laðar fram.

Fyrir innan mætir gestum vinaleg og persónuleg þjónusta allan sólarhringinn. Afar þægileg og vistleg herbergin eru öll með eigin baðherbergi, síma, útvarpi og fjölrása sjónvarpi.

Í sólskála á þriðju hæð er framreiddur hressandi morgunverður. Gestir hótelsins hafa aðgang að skálanum hvenær sem er dagsins og geta tyllt sér niður yfir kaffi- eða tebolla.

Tvö af bílastæðahúsum borgarinnar eru aðeins steinsnar frá hótelinu.

Gistið á Hótel Skjaldbreið og njótið þess besta sem Reykjavík hefur upp á að bjóða!

 

Morgunverðarskáli

Vegamót

Kort

Webmaster