| Dagbók og fréttir | ||||
Kaup á Svifnökkva24.feb 2003Ákveðið hefur verið að leggja í kaup á nýjum svifnökkva. Um er að ræða Hovergard 700 frá Hovertechnics í Bandaríkjunum og kostar rúmlega 2,6 milljónir. Þetta hefur staðið til hjá sveitinni í all langan tíma og nú loksins getur þetta orðið að veruleika en sveitin hefur rekið annan svifnökkva af gerðinni Scat frá 1996 sem hefur reynst vel en sá nökkvi er verður seldur á uppboði hjá Sjóvá-Almennum. Nýji nökkvin er stærri og hentugri til björguarnstarfa enda sérstaklega hannaður með það í huga. Notkun á svona tæki hefur mest verið við leitir við grunnar ár og vötn þar sem bátar komast ekki auðveldlega vegna grinninga en einnig væri hægt að fara á þessum þar sem krap og vakir er til staðar eins og upp á hálendinu. Aðstoð á landi23.feb 2003Aðstoð við bíl dregin upp vestan við Óseyrarnes brú Útkall27.1.2003Tilkynningarskyldan óskaði eftir að kannað væri rautt ljós sem sást u.þ.b. 1 km fyrir austan Stokkseri. Eftirgrenslan leiddi í ljós að ljósið kom líklega frá laser tæki sem notað er við gerð sjóvarnagarðs við Stokkseyri. Ekkert var því aðhafst frekar. Flugvél fór í sjóinn31.12.2002Flugmódel fór í sjóinn sunnan við Litla Hraun. Björgunarsveita menn frá sveittinni aðstoðuðu eigendurna að endur heimata flugvélina úr sjónum. Ný heimasíða23.12.2002Gleðileg Jól og velkominn á heimasíðuna hjá okkur. Hún hefur verið lengi í vinnslu en er nú loks farin að virka aðeins. Eftir er að bæta hana eitthvað en það kemur fljótlega. Fréttabréfið kom út í dag og verður það aðgengilegt hérna á netinu eftir jól. |
Yfirlit Ferð á Langjökul |
|||