Bjsv. Björg var stofnuð 21. Desember 1928
aðeins tæpu ári eftir að Slysavarnafélag Íslands var stofnað og mun þessi sveit
vera sú sjötta sem stofnuð var, þá fljótlega fór að bera á miklum áhuga á
þessum málum, stofn félagar urðu 116 talsins og voru orðnir 130 í lok ársins
1928, og var þetta fjölmennasta sveitin fyrir utan Reykjavík, degi seinna var stofnuð björgunarsveit
á Stokkseyri. Starfssvæði sveitarinnar
var Eyrarbakkahreppur og Þorlákshöfn.
Fyrstu stjórn skipuðu Þorleifur Guðmundsson formaður, Jón Helgason
ritari og Jón Stéfánsson féhirðir.
fljótlega komu hingað fluglínutæki og fyrsti björgunarbáturinn, trébátur
ásamt vestum, þessi árabátur var
lengi vel til hér en því miður vegna
húsnæðis skorts og líklega áhugaleysis fyrir varðveyslu hans eyðilagðist hann.
Árið 1962 var fyrsta skoflustungan tekin
af húsi sveitarinnar, stórhuga menn, og byggðu þá um 80 fermetra hús, tekið í
notkun 1963. Fyrstu bifreiðina eignaðist
sveitin 1975 svo kallaðan rússa, 1963 eignaðist sveitin sinn fyrsta
vélgúmmbjörgunarbát, 1984 verða tuðrunar
tvær og svo hefur það verið síðan, Báðir gúmmíbátarnir voru endurnýjaðir
árið 2000. Árið 1987 var nýr bíll af
gerðinni Surburban keyptur, þá var húsnæði sveitarinnar orðið of lítið svo
ráðist var í 100 fermetra viðbyggingu,
um 1992 var svo keyptur annar Surburban og rússin gamli seldur. 1997 var keypt nýtt tæki í sveitina Svifnökkvi
sem hefur breytt miklu og sjá menn mikið eftir að vera ekki búnir fyrir löngu
að fjárfesta í slíku þarfa tæki, einnig var eldri bifreiðinni skipt út og
keyptur Muzzo og 1999 var síðan hinni skipt út
fyrir nýjan Surburban. Með þessari
tækjaaukning hefur hús sveitarinnar orðið of lítið enn á ný og nú árið 2001 er
verið að byggja 100 m2 við.
Til að skoða myndirnar betur er hægt að hægt að klikka á þær.
Víglundur Guðmundsson tók saman birt með fyrir vara um villur og er allar ábendingar vel þegnar.