Unglingadeildin


Unglingadeildin hefur verið starfrækt í nokkur ár. Öflugt starf er innan deildarinn og öllum líkar þetta vel. Umsjónarmenn deildarinn eru Hlöðver Þorsteinsson og Víglundur Guðmundsson.

Unlingadeildin gerir margt á hverju ári en aðal starfsemin er á veturna. Unglingarnir fara á námskeið eins og skyndihjálp, rötun, ferðamenska og fleiri. Einnig eru haldnar ýmsar æfingar og fá unlingarnir oft að fara með okkur eldri á þær æfingar, æfingarnar sem farið er í eru bátar, göngur, hellaganga, rústabjörgun, skyndihjálp, rötun og markt annað. Einnig fara þau í heimsóknir annað eins og til dæmis til lögreglunar, landhelgisgæslunar og annara sveita og kynnast starfi þessara aðila. Fyrir utan allt það sem tengist björgunarsveita starfi þá er farið í bío, keilu, haldið vídeo kvöld og fleira.

Unglingadeildin tekur þátt í mörgum öðrum hlutum sveitarinnar eins og fjáröflunum og viðhalda húsinu og tækjum. Þau taka þátt í gæslu störfum eins og á Murneyrum, tjalda stórum tjöldum og margt fleira. Þau hafa verið mikill þáttur í þessari sveit hvað þetta varðar og gera þetta að fagmennsku.

Tilgangur unglingadeildarinnar er að þjálfa upprennandi björgunarsveitamenn og auðvitað hafa gaman af. Ef þú hefur áhuga á að ganga í þessa unglingadeildina þá geturu haft samband við umsjónarmennina eða einhvern sem er í stjórn. Ef þú hefur einhverjar spurningar þá skulum svara þeim með glöðu geði.


Á unglinalandsmóti