Héraðsnefnd Árnesinga

40. fundur

haldinn að Geysi 13. mars 2004.

  1. Hjörleifur Brynjólfsson oddviti Héraðsnefndar Árnesinga setti fundinn og bauð fulltrúa velkomna. Baðst hann velvirðingar á að fundurinn, sem halda átti fyrir jól, hefði dregist úr hófi.  Í framhaldi af því ræddi hann þá hugmynd að flýta framvegis haustfundi.  Taldi hann æskilegt að hann væri haldinn fyrir 10. nóvember ár hvert. Sveitarstjórnarmenn væru mjög uppteknir á þeim tíma sem haustfundurinn væri venjulega haldinn, þannig að erfitt væri að ná saman fundi.  Vinna við fjárhagsáætlanir væru almennt í fullum gangi frá miðjúm nóvember til áramóta.  Almennar  umræður urðu um þetta mál. Guðmundur Stefánsson reifaði þá hugmynd að SASS tæki verkefni héraðsnefndar yfir.  Ragnheiður Hergeirsdóttir taldi þá hugmynd verðuga skoðunar, allt starf þyrfti sífellt að vera í endurskoðun.  Margir fundarmanna lýstu sig fylgjandi því að færa haustfundinn fram.  Margrét K. Erlingsdóttir taldi nauðsynlegt að ákvarðanir um fjárhagslegar skuldbindingar sem fara fyrir héraðsnefnd, liggi fyrir áður en gerð fjárhagsáætlana sveitarfélaganna sé lokið.

Margeir Ingólfsson tók til máls og bauð fundarmenn velkomna í Bláskógabyggð.  Hann, ásamt Sigurði Inga Jóhannssyni, Hjörleifi Brynjólfssyni og Páli Leó Jónssyni taldi varhugavert að hrapa að breytingum á fyrirkomulagi héraðsnefndar. Einnig gerðu einstakir  fundarmenn athugasemdir við óvenjulegan fundartíma.

  1. Fundargerðir héraðsráðs nr. 124-125-126 lagðar fram og voru þær staðfestar með athugasemdum um að nauðsyn bæri til að fundarmönnum bærust fundargerðir einstakra stofnana í fundargögnum til skoðunar.
  2. Lagðar fyrir fundinn fjárhagsáætlanir Héraðsnefndar Árnesinga, Byggðasafns Árnesinga, Tónlistarskóla Árnesinga, Listasafns Árnesinga og Héraðsskjalasafns Árnesinga.  Einnig fundargerðir Héraðsskjalasafnsins frá 12. nóv. sl.; fundargerð fjárhagsnefndar Héraðsnefndar Árnesinga dags. 19. jan. 04.  Til máls tóku Ragnheiður Hergeirsdóttir, Guðmundur Stefánsson, Bjarki Reynisson, Einar Njálsson og Guðlaug Sigurðardóttir. Fjárhagsáætlunum vísað til fjárhagsnefndar.
  3. Verksamningur um búfjáreftirlit ásamt samkomulagi við Vestmannaeyjabæ lagður fram til endanlegrar staðfestingar.  Ræða þarf sérstaklega gjaldtöku sveitarfélaga sbr. 4. gr. 4. lið samningsins og skipan búfjáreftirlitsnefndar.  Til máls tóku Sigurður Ingi Jóhannsson, Guðmundur Stefánsson og Bjarki Reynisson. Samningurinn samþykktur samhljóða, og lýstu fundarmenn ánægju með hann. Skipan búfjáreftirlitsnefndar vísað til allsherjarnefndar.
  4. Erindi sem borist hafa og erindi sem vísað er til afgreiðslu héraðsnefndarfundar:

a)      Fundargerð bygginganefndar og fjárhagsráðs F.Su. dags. 24.2.04.  Óskað er eftir samþykki Héraðsnefndar Árnesinga að ljúka viðbyggingu um leið og aðalbyggingu íþróttahúss.  Til máls tóku m.a. Einar Njálsson, Guðmundur Stefánsson, Sigurður Ingi Jóhannsson, Hjörleifur Brynjólfsson  Vísað til fjárhagsnefndar.

b)      Erindi frá Héraðssambandinu Skarphéðni dags. 5.12.03 með beiðni um fjárstuðning. Til máls tók Margeir Ingólfsson og spurðist fyrir um framlög sveitarfélanna umfram framlag héraðsnefndar til sama aðila og svöruðu fundarmenn þeirri spurningu hver fyrir sitt sveitarfélag.  Vísað til fjárhagsnefndar.

c)      Erindi frá Hrunamannahreppi, dags. 7. janúar 04 um hugsanlega aðkomu Héraðsnefndar Árnesinga að uppbyggingu minjasafns Emils Ásgeirssonar í Gröf.  Sigurður Ingi Jóhannson fylgdi því úr hlaði. Kom framí hans máli að ekki væri farið fram á fjárhagslegar skuldbindingar héraðsnefndar. Einnig tók Lýður Pálsson til máls.  Vísað til mennta- og menningarmálanenfndar.

d)      Erindi Vegagerðarinnar um safnvegi, dags. 24.10. og 8.12.03 um safnvegaáætlun fyrir 2003-2006.  Óskað er eftir umsögn héraðsnefndar.  Til máls tók Margeir Ingólfsson og Einar Njálsson.  Vísað til vorfundar.

e)      Erindi Alviðrustofnunar dags. 29.11.03.  Til máls tóku Guðlaug Sigurðardóttir og Gunnar Þorgeirsson, Torfi Áskelsson og Guðmundur Stefánsson.  Vísað til fjárhagsnefndar.

f)        Byggðasafn Árnesinga, dags. 18.1.04.  Hugmynd um aðkomu

Héraðsnefndar Árnesinga að  minjasafninu í Gröf.  Starfsáætlun 2004 ásamt rekstraráætlun, - kostnaðar- og framkvæmdaáætlun um uppbyggingu Eggjaskúrsins, - drög að söfnunar- og sýningarstefnu til kynningar ofl.  Vísað til mennta- og menningarmálanefndar og fjárhagsnefndar að hluta.

g)      Tónlistarskóli Árnesinga (fg. 124 f. liður 5 B) þar sem óskað er eftir endurskoðun nefndarlauna.  Til máls tóku Sigurður Ingi Jóhannsson, Guðmundur Stefánsson, Herdís Þórðardóttir, Lýður Pálsson, Björn Pálsson og Einar Njálsson ásamt héraðsráðsmönnum.  Fjárhagsnefnd falið að vinna að  samræmingu launa fyrir nefndarsetu og skili tillögu þar að lútandi á vorfundi.

h)      Erindi frá Jórukórnum á Selfossi dags. 1.3.04 með beiðni um fjárstuðning. Vísað til fjárhagsmefndar.

  1. Ávörp og kynningar fulltrúa safna og skóla.

Skólastjóri Tónlistarskóla Árnesinga, Robert Darling, sendi kveðju sína, en gat því miður ekki verið á fundinum.  Fyrir liggur ársskýrsla skólans, vönduð eins og ævinlega. Ragnheiður Hergeirsdóttir undirstrikaði aðalatriði hennar gagnvart fundarmönnum.

Margrét Ásgeirsdóttir forstöðumaður Bæjar- og héraðsbókasafns Árnesinga sendi á sama hátt kveðju sína og skýrslu um starfsemina, dags. 12. mars 2004.

Til máls tók forstöðumaður Héraðsskjalasafns Árnesinga, Björn Pálsson, og sagði frá starfsemi þeirrar stofnunar, sem hefur, eins og framlögð skýrsla sýnir, aldrei verið meiri.

Lýður Pálsson, forstöðumaður sagði ítarlega frá starfsemi Byggðasafns Árnesinga og fyrirætlunum þar á bæ.  Til máls tóku Baldur Kristjánsson, Ragnheiður Hergeirsdóttir, Aðalsteinn Guðmundsson, Einar Njálsson og Björn Pálsson.

Birna Kristjánsdóttir forstöðumaður Listasafns Árnesinga sagði frá framtíðarhorfum í safninu, fyrirhuguðum sýningum og rekstri.  Til máls tóku Baldur Kristjánsson, Herdís Þórðardóttir, Hjalti Helgason, Margrét Katrín Erlingsdóttir og Einar Njálsson.

Að loknum þessum umræðum tóku nefndir til starfa, eftir ljúffengan hádegisverð  að Hótel Geysi.

  1. Álit nefnda tekið til umfjöllunar.

Eftirfarandi samþykkt að undangengnum umræðum og áorðnum breytingum:

Frá allsherjarnefnd  

“Tillaga um búfjáreftirlitsnefnd:

Páll Stefánsson svf. Ölfuss, sem boði fyrsta fund

Snæbjörn Sigurðsson Bláskógabyggð

Aðalsteinn Guðmundsson Skeiða- og Gnúpverjahreppi

Til vara:

Valdimar Guðjónsson Gaulverjabæarhr.

Guðmundur Þorvaldsson Grímsnes- og Grafningshr.

og                                            skv. tilnefningu Vestmannaeyjabæjar.”

Nefndina skipuðu

Baldur Kristjánsson

Guðmundur Stefánsson

Margeir Ingólfsson

Hjalti Helgason.

                                                                        Samþykkt samhljóða.

Haustfundur Héraðsnefnd Árnesinga

haldinn á Hótel Geysi 13. mars 2004

Nefndarálit fjárhagsnefndar

  1. Viðbygging við íþróttahús FSu

Fjárhagsnefnd leggur til að héraðsnefnd samþykki að standa að sínum hluta að því að fullgera viðbyggingu við íþróttahús FSu í samræmi við erindi byggingarnefndar og fjárhagsráðs FSu frá 24. febr. 2004. Áætluð fjárhæð sem skiptist milli aðildarsveitarfélga, annarra en Árborgar, er 6.400.000 krónur.  Héraðsnefndin leggur áherslu á að áfram verði unnið að því að fá menntamálaráðuneytið til að samþykkja lögbundna aðild að byggingunni.

  1. Alviðra.

Fjárhagsnefndin samþykkir að leggja til breytingu á tillögu að fjárhagsáætlun 2004 sem liggur fyrir fundinum þannig að framlag ársins 2004 verði kr. 500.000 í stað 545.000.

  1. Jórukórinn

Fjárhagsnefnd telur að styrkveiting eins og hér er óskað eftir falli ekki undir verksvið Héraðasnefndar heldur verði að beina slíkum erindum til einstakra sveitarfélaga.

  1. Fjárhagsáætlanir

a)                   Héraðsskjalasafn Árnesinga

Fjárhagsnefnd ítrekar bókun sína á fundi nefndarinnar 19.01.04 og samþykkir að framlag til héraðsskjalasafnsins hækki milli ára um 3% og verði kr. 6.720.000.

b)                   Listasafn Árnesinga

Fjárhagsnefnd vísar til fundargerðar 19.01.04 – liður 2 – og samþykkir að framlag héraðsnefndar verði kr. 9.295.000.  Hækkun milli ára er 3% að  viðbættum kr. 700 þús. vegna launabreytinga og kr. 1.200 þús. vegna afborgana af láni til endurbóta.

Fjárhagsnefnd samþykkir sérstaka fjárveitingu vegna afborgana af lánum til endurbóta á árinu 2003 að fjárhæð kr. 665.000.

c)                    Byggðasafn Árnesinga

Fjárhagsnefnd vísar til fundargerðar 19.01.04 – liður 3 – og samþykkir að framlag nefndarinnar hækki um 3% milli ára og verði kr. 12.150.000.  Fjárhagsnefnd bendir á að miðað við framangreint framlag eru rekstrarútgjöld hærri en rekstraratekjur sem svarar kr. 1.118.000. Fram kom hjá forstöðumanni safnsins að þessum mismun verður mætt að hluta til með eigin fé og að hluta til með aðhaldsaðgerðum.  Þar sem fyrir liggur að fjármagn hefur verið tryggt til byggingar “eggjaskúrsins”, leggur nefndin til að heimilað verði að ljúka byggingunni.

d)                   Tónlistarskóli Árnesinga

Í greinargerð skólans er óskað eftir fjárveitingu að fjárhæð kr. 85.910.000 til greiðslu á launakostnaði skólans.  Í greinargerðinni kemur einnig fram að í sjóði eru u.þ.b. 5.3 milljónir króna. Fjárhagsnefnd samþykkir að framlag héraðsnefndar til Tónlistar-skólans á árinu 2004 verði kr. 82.610.000 og mismuninum kr. 3.300.000 verði mætt með því að ganga á inneign í sjóði.  

Bjarki Reynisson,

Margrét Katrín Erlingsdóttir,

Páll Leó Jónsson,

Einar Njálsson  og Guðlaug Sigurðardóttir

Að undangengnum nokkrum umræðum lagði Sigurður Ingi Jóhannsson  til eftirfarandi breytingu við álit nefndarinnar við lið 4a: 

“Heildarframlag verði aukið um kr. 530 þús. í kr. 7.250.000.

Greidd voru atkvæði um þessa tillögu og hún samþykkt með öllum greiddum atkvæðum. Nefndarálit fjárhagsnefndar að öðru leyti samþykkt samhljóða.

Frá mennta- og menningarmálanefnd

Nefndina skipuðu:

Ragnheiður Hergeirsdóttir Árborg, Gylfi Þorkelsson Árborg, Torfi Áskelsson Árborg, Aðalsteinn Guðmundsson Skeiða- og Gnúpverjahr., Herdís Þórðardóttir Hveragerði.

1.   Haustfundur Héraðsnefndar Árnesinga haldinn á Geysi 13. mars, tekur undir hugmyndir áhugahóps að stofnuð verði sjárfseignarstofnun um minjasafn Emils Ásgeirssonar í Gröf og hún verði beintengd Byggðasafni Árnesinga, og þar með öðru safnastarfi í sýslunni.

  1. Haustfundur Héraðsnefndar Árnesingahaldinn á Geysi 13. mars samþykkir að Byggðasafn Árnesinga hefji framkvæmdir við Eggjaskúr við Húsið á Eyrarbakka, þar sem fjármögnun verksins er tryggð.
  2. Haustfundur Héraðsnefndar Árnesinga haldinn á Geysi 13. mars, fagnar metnaðarfullu starfi mennta- og menningarstofnana sem heyra undir héraðsnefnd.”

Samþykkt samhljóða.

  1. Önnur mál.

Guðlaug Sigurðardóttir fjárhaldsmaður Héraðsnefndar Árnesinga ræddi innheimtumál.

Fleira var ekki á dagskrá fundarins.  Hjörleifur Brynjólfsson oddviti þakkaði góðan fund og afbragðs móttökur heimamanna, sem enduðu á því að bjóða  fundarmönnum til veglegs kvöldverðar á Hótel Geysi.  Fundi slitið.

                                                            Halla Guðmundsdóttir

                                                            ritari Héraðsnefndar Árnesinga.

Eftirtsldir héraðsnefndarmenn sátu fundinn og undirrita fundargerð:

Hjörleifur Brynjólfsson                                       Sigurður Ingi Jóhannsson

Þorvaldur Guðmundsson                                    Margeir Ingólfsson

Gunnar Þorgeirsson                                             Páll Leó Jónsson

Torfi Áskelsson                                                   Guðlaug Sigurðardóttir

Gylfi Þorkelsson                                                   Ragnheiður Hergeirsdóttir

Margrét Erlingsdóttir                                           Baldur Kristjánsson            

Einar Njálsson                                                      Bjarki Reynisson

Aðalsteinn Guðmundsson

Guðmundur Stefánsson                                      (sign)

Hjalti Helgason

Herdís Þórðardóttir

Valdimar Guðjónsson

  Heim Samningur Héraðsnefnd Héraðsráð Fundargerðir Stofnanir Fjármál Saga Tenglar Póstur